Ásdís, Erna, Gréta, Íris Hrund og Íris

3 banjó og 1 gítar

29.01.2008 23:07:50 / Gréta Sigga

já, flott

Jájá, við erum greinilega  bara svona dugleg ar að læra að við höfum ekki tíma fyrir jafn ómerkilega hluti að blogga.  nú eða þá bara að við eyðum svo miklum tíma saman að við höfum ekkert að segja þegar svo á að fara að blogga.  eníveis, ég ætlaði nú bara að deila með ykkur hvers vegna við munum alla vega ekki blogga mikið svona á nánustu framtíð þar sem kennararnir okkar hafa ákveðið að þetta sé rétti tíminn til að hafa próf/fyrirlestur/skilaverkefni.  án djóks þá er eitthvað svoleiðis í öllum tímum sem við erum í nema þýsku og leikfimi!!! það eru svona sex hlutir eða eitthvað.  þetta er ekk í lagi...

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 14:46:45 / Gréta Sigga

ég fæ jólagjöf...

Jæja, kútar. 

þá er kominn 16. desember og jólin nálgast æ.  prófunum er lokið og vér unga æskufólk komin í hin helgu vébönd heimilanna.  Þá finnst mér vera kominn tími á litla hugleiðingu um hina sönnu merkingu jólanna sem eins og hvert mannsbarna veit snýst aðallega um PAKKA. 

Ég ætlaði bara að nota þetta tækifæri til minna alla sem ég þekki á að öllum jólagjöfum sem berast frá mér má og á að skipta eg þiggjandinn er ekki sáttur án þess að ég verði hið minnsta leið, pirruð eða komist í uppnám af nokkru öðru tagi.

veriði sæl og njótið nú jólaundirbúningsins 


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 16:36:19 / Erna

í kvöld, jólin er´að koma... í kvöld, jólin er´að koma :D

jæja, dömur... langaði að henda inn einu bloggi hérna... langt síðan ég bloggaði á þessari síðu. En er ekki ráð við því að laga hana og halda áfram að skrifa slúður, sunnudagspistilinn hennar Grétu... litlu skemmtilegu bloggin hennar ásdísar... vita hvað íris hurnd er dugleg að læra.... og hvað íris s er að gera í jólafríinu sínu...

ég skal deila því með ykkur hvað ég ætla að gera í jólafríinu hjá mér... sko eftir próf er ég að farað kaupa jólagjafir, (ef þið eruð ólmar í að fá gjöf frá mér, endilega tikkið inn hvað ykkur langar í í kommentinu) svo fer ég hugsanlega á Akureyri á snjóbretti, kannski í sumarbústaðaferð með ykkur að hafa það kósí... drekka kakó, kúra undir sæng, vera með mjúka bangsa og horfa á jólamyndir... ég veit ykkur langar það ;)

en já, um áramótin verð ég að hjálpa pabba með flugeldasölu, svo þetta verður allt saman mjög skemmtilegt og spennandi. svona nú.... bloggið hvað þið ætlið að gera í jólafríinu :D:D

bæææææ:lol:

(tíhí... ég hnerraði örugglega 10 sinnum á meðan ég bloggaði... atsjú.... ehhe)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 10:45:44 / Ásdís

HALLÓ

hæ hey er ég ein um að taka eftir að síðan okkar er STEINdauð!!!? :S Eigum við að taka höndum saman og vekja hana upp frá dvala?? ha...?  ok ætla núna allir að kommenta við þetta blogg og vera geðveikt hressir og tjá sig hérna...:) .:) :)

saman getum við þetta!

haha bæ


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 18:15:32 / Gréta Sigga

Taka 2

jæja, ég ætla að gera aðra tilraun að ógnarskemmtilegu bloggi, vegna fjölda áskorana... eða ok, einnar.  :)

það versta er samt að ég man ekkert hvða ég var svona mikið að skrifa um seinast, en það verður bara að hafa það.  Það sem á eftir fylgir verður því lítil hugleiðing um fyrstu dagana í skólanum.  Nú er liðin rúm vika af þriðja bekk í Kvennó og ég verð bara að segja að þetta er þvílíkur munur frá því í ö0ðrum bekk.  Eins og allir sem voru í 2.T vita snerust umræðurnar þá að mestu um hvað það væri nú gaman í sandkassanum og hvort við ættum að fara í snúsnú eða teygjutvist í frímínútunum.  En nú er öldin önnur.  Við höfum öll þroskast mikið og allar umræður snúast aðallega um allegórískar táknsögur og landrekskenningu Wegeners svo dæmi séu tekin.  Auk þess erum við öll vaxin upp úr teygjutvist og því þarf ekki að ræða það að auðvitað förum við í snúsnú í frímínutunum. :) nú eru komnir nýir busar sem dreifa sér hvað mestu þau geta um gangana, þar sem þau vita ekki í hvaða stofum þau eiga að vera.  hehehe, kjánar.  

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 21:29:57 / Gréta Sigga

ojæja

vitiði, ég var búin að skrifa mjög langt og ógnarskemmtilegt blogg en þá fór netið í fokk og allt datt út.  :( þið eruð að missa af miklu    


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 16:32:50 / Íris

myndir

ég setti inn myndir úr afmælinu hennar írisar ;) njótið vel og eitt klapp fyrir að ég sé að tæknivæðast! vúhú

» 15 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 00:36:34 / Gréta Sigga

Íííííírrrrrrriiiiiiisssss

Íris Hrund, viltu vera svo væn að hafa samband við okkur, við þurfum að tala við þig

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 17:17:58 / Ásdís

Eiríksstaðahátíð úhú!

Hæ.   Ég hef ákveðið að blogga.   Vitiði af hverju?   Af því að síðasta blogg var í MAÍ.  Ég endurtek: MAÍ.   Eftirtektsamir vita kannski að nú er JÚLÍ.   en já ekki meira um það...........því við vorum á Eiríksstaðahátíð,,  eða Leifshátíð eins og  einhverjir (Leifur sjálfur kannski?) vilja kalla hana. En það var allavega GEGGJAð stuð ...íris tók um 300 myndir ! :D..og svo spilaði nú hljómsveitin BÍT fyrir dansi :lol: og svo má ekki gleyma að nágranna tjöldin hæeldu uppi stuðinu með sinni ómótsstæðilegu ,,tónlist" ..sem einkenndist af: búmm búmm búmm búmm....

Ferðin byrjaði vel;bílarnir troðnir og bíllinn hans Auðuns heill heilsu ;) við keyrðum af stað í sólinnni (Axel,Andrea,Auðunn,Íris,Jóhanna, Ásdís og svo bættust Jói, Elín og Gréta við á Borgarnesi) en svo þegar við komum á staðinn voru bara ský þar..sem voru fram á sunnudag :evil: og hífandi rok...! fólk fór að drífa sig að tjalda og fjúka og svo var étið og byrjað að súðpa öl (enginn smakkaði vín og efni ) ...svo var ball í stóra tjaldinu og allir voru bara í nettum fílingi, hittum alla rugludallana úr sveitinni, nefni engin nöfn ..neihei þau eru æði...það vantaði samt nokkra síðhára :/ og fórum svo að sofa bara um 2...sumir héldu að þeir mundu deyja um nóttina eða tjaldið fjúka en allir sluppu hólpnir úr tjaldinu morguninn eftir! :)  svo fórum við að synda (nei reyndar ekki hehe)í sund á Laugum og ís í Búðardal og grilluðum svo ..mmmmmm.. kúrðum svoldið inní hippatjaldinu og spáðum í myglubletti...komumst að því að þeir litu út eins og Grænland, Einhyrningur, Kjúklingur og margt fleira haha :lol: svo kl. 19 voru einn eða 2 bjórar opnaðir og horfðum á Black sheep spila (sem eru Tommi , Kristján og co) og þeir stóðu sig nú bara allvel..! svo var bara drukkið og djammað fram eftir nóttu!!! allir í lopapeysum o góðum fílingi....svo endaði með því að við fórum öll að sofa í Auðuns tjadi,; öll 9 !! :D jóhanna og íris til fóta greyin..og allir sváfu ljómandi vel (?? flestir kannski..) svo vaknaði enginn þunnur;skelltum okkur í sund í Borgarnesi til að ná okkur í tan...og svo mat....svo bara heim á leið! og allir ýkt ánægðir eftir þessa ferð (látið mig vita ef svo er ekki; þá tek ég þetta út ! )

Gvöööð ég gleymdi eiginlega að segja frá aðal slúðrinu ! :D Hann Auðunn keyrði útaf smá aðeins pínupons! jáh því hm...hann ákvað að taka lykilinn úr á ferð tl að opna hanskahólfið...:D :S já en allir sluppu lifandi, meira að segja jóhanna og íris..og bílinn! 

en sorrý ef ég er að gleyma að skrifa um eitthvað /einhvern merkilegt ...:S:) því þetta blogg var nú bara svona flipp...reyndar er ekkert af þessu satt! heh ég hef nú bara aldrei heyrt um einhverja Eiríksstaðahátíð, ég skáldaði þetta allt til að þið hélduð að ég ætti mér eitthvað líf..njahaha..

Já heehhe njótið sólarinnar , elska ykkur ! bless.


» 16 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 18:49:16 / Gréta Sigga

sumar?

vitiði hvað, ég skal segja ykkur skemmtilega sögu.  Í morgun var gréta á leiðinni í vinnuna.  Þetta var sólríkur morgunn svo hún fór bara í jakkann sinn og skildi húfuna og vettlingana eftir heima á meðan hún hjólaði í vinnuna.  Þegar hún þurfti að hjóla niður á elliheimili tveim tímum seinna var hætt að vera bara sól, það var kominn smá vindur líka.  þegar hún hjólaði svo aftur í vinnuna efti hádegishléð sitt um hálftólfleytið var kominn smá vindur.  Þegar hún hjólaði svo heim til sín um sexleytið VAR KOMINN SNJÓKOMA SEM HÆTTI EKKI NEMA RÉTT TIL AÐ HLEYPA HAGLÉLINU AÐ!!! og getiði hvað, það er aftur komin sól.  Helvítis maí

» 20 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 17:44:45 / Gréta Sigga

Já, vitið hvað, ég verð að segja, stundum langar mig rosalega mikið  að breytafjórum jötnasonum mínum í uxa, taka plóginn minn og draga Borganrnes aðeinsnær Reykjavík.  Sérstaklega þegar ég hef ekker að gera...

Til dæmisí dag.  Þetta hefur verið ofurspennndi dagur, þar sem égvar vakin allhrottalega um   tíuleytið og dregin framúr.  þáfór é að æfa migá píanóið og lælra.   þegar ég var búin að þvi. ÞÁ VAR EKKERT EFTIR TIL AÐ GERA!!!!!!

svo að nú er ég reið    :klikk:


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:39:22 / Íris

sko ernu!

sjáiði sætu stelpuna sem var að dansa á sýningu :D

 ótrúlega flott hjá þér stelpa, við erum stoltar af þér!

 
:D:D:D

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 19:05:24 / Íris

yatsí

jæja þá er maður nýskriðinn heim úr brjálæðislega skemmtilegri njáluferð sem er bara eitthvað sem allir verða ganga í gegnum þvi það er bara svo fáránlega ógeðslega kjánalega skemmtilega jahérna hér! eða hvað?

 allavega er ég eins og ég sé búin að vera að rotna í svona 5 daga því ég er ekki að meika að gera neitt í augnablikinu... nema læra, er búin að vera geðveikt samviskusöm og dugleg að ég trúi þessu varla uppá mig

svo fór ég líka að hugsa aðeins fram í tímann og dreyma um launaseðilinn minn sem birtist hérna eftir nokkra daga, svona líka myndarlegan eftir mikla vinnu í páskafríinu en nei sú hugsun breyttist í martröð þegar ég sá fram á að égþyrfti að eyða smá mikinn pening í að bjarga harða disknum mínum, en hey kannski borgar það sig... og líka eyða pening í fullt af dóti sem ég væri meira en til í að sleppa að þurfa að borga....

 er bara að hlusta á lagið Painkiller með Pendulum... eitthvað sem axel náði að troða svona illilega í hausinn á mér að ég held að ég geti ekki lifað heilan dag án þess að hlusta á það í svona klukkutíma á repeat

annars bara gaman að minnast á það að við fórum nokkur stykki (ég axel elín ásdís og jóhann) á ball og fótboltamót seinustu helgi og það var alveg ferlega gaman og lentum við stelpurnar í 3 sæti og nokk sáttar og svo ekki sé minnst á ballið og allt skemmtilega og fallega fólkið sem við hittum eftir svo langan tíma

 held að þetta sé bara orðið gott í dag, enda þetta bara á einni mynd af Friðjóni vini okkar

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 18:21:05 / Gréta Sigga

Sunnudagspistill Grétu

Ég hef ákveðið að endurvekja sunnudagspistil Grétu, þó ekki sé nema af því að þessi síða er hægt og hægt að lognast útaf.  Svona er helgin mín.

Ég er að rotna í Borgarnesi.  Mig langar svo mikið á ball að ég er að deyja og ég á eftir að læra fyrir próf.  Á meðan eru allir á balli að skemmta sér.  :(

Ég fór á enduropnun sýningarinnar um strand Pourquoi pas? í dag.  Þar hlustaði ég á margar ákaflega áhugaverðar ræður um strandið og auk þess var hlustað á létta tóna, bæði franska harmonikkutónlist frá rússneskum harmonikkuleikara (!) og kvartettinn silfurrefirnir sem reyndar var tríó í dag tóku líka nokkur lög.  Það var stuð...

Á morgun er ég svo að fara að vinna við sýninguna.


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 13:46:58 / Gréta Sigga

pásk pásk

Jæja, hvernig líður ykkur núna í páskafríinu?, ég get alla vega sagt ykkur það að mér líður aldeilis ágætlega, ég er a' verða 150 kíló af páskaeggjaáti og er að lesa þrjár skemmtilegar bækur og eina leiðinlega (dönsk glæpasaga þar sem fórnarlömbin eru nírætt fólk sem er á grafarbakkanum? hvaða rugl er það?) annars líður mér bara vel nema það er byrjað að snjóa.... mikið.

en annars er bara skóli á hinn daginn en  það er nú allt í lagi þar sem það er bara í þrjá daga og ekkert próf og enign ritgerð svo ég er bara nokkuð sátt. 

en alla vega ...  vi ses


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Sonderborg!!!!!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1805 dögum
skólinn okkar